Pólitíkin | 25. febrúar 2010 | 12:56:33
Tölum saman
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á stjórnmálum og því sem er að gerast í kringum mig í mannlífinu. Ég flutti fyrst hingað til Reykjanesbæjar fyrir 16 árum og hef alltaf verið ákaflega stolt af bænum mínum og notað hvert tækifæri sem ég fæ til að segja frá honum og hvað það er gott að búa hérna með fjölskylduna.
Ég hef sagt það áður og segi það enn, Reykjanesið og Reykjanesbær þar á meðal eru eitt best geymda leyndarmál landsins og tækifæri á svið atvinnu, menningar, skólamála, náttúruskoðunar og útivistar eru nánast óþrjótandi. Reykjanesbær býr þar að auki yfir þeirri sérstöðu að vera “bítlabærinn” og það mætti að ósekju leggja meiri áherslu á þá sérstöðu því tónlist dregur að fleiri ferðamenn en nokkuð annað, og hér er einn besti tónlistarskóli landsins. Eins er ekki hægt að tala um Reykjanesbæ án þess að minnast á íþróttastarfið sem hér er unnið af miklum móð og sem er af mörgum sérfræðingum talið vera ein besta forvörn gegn áfengi og fíkniefnum fyrir ungt fólk sem völ er á.
Þrátt fyrir alla þessa kosti og tækifæri sem blasa við, er iðulega talað niður til bæjarins. Hér er allt á hverfanda hveli, mikið atvinnuleysi, aukin glæpatíðni, spilling í stjórnkefinu, heilsugæslan í rúst, álver helvítis álver og svo mætti lengi telja.
Hættum að tala bæinn okkar niður, þetta er frábær bær og fólkið sem í honum býr líka. Snúum vörn í sókn og byrjum á okkur sjálfum, hættum að tala bæinn okkar niður!! Tölum jákvætt um Reykjanesbæ því hér búum við og við ráðum því hvort framtíðin er björt eða ekki.
Ég kýs að sjá bæinn minn í jákvæðu ljósi, börnin mín ganga í góðan skóla, heilsugæslan hefur alltaf þjónað mér vel þegar ég hef þurft á henni að halda, öll þjónusta í bænum er til fyrirmyndar og innan seilingar, mér líður semsagt vel í Reykjanesbæ og hér vil ég vera.
Ég geri mér grein fyrir því að bænum er líka vandi á höndum. Það þarf til dæmis að opna stjórnkerfið, gera það gagnsærra, taka hausinn upp úr sandinum og fara að horfast í augu við fjárhagsvanda bæjarins og vinna í því að finna lausnir á honum. Það verður þó gert ef hér verður ástunduð pilsfaldapólitík og hagsmunir fárra teknir fram yfir hagsmuni heildarinnar. Íbúalýðræði þarf að vera virkt og bæjarfulltrúar verða að hlusta á fólkið í bænum, annars eru þeir ekki góðir bæjarfulltrúar.
Mín skoðun er sú að samræðustjórnmál séu betri en þrætustjórnmál og þannig náist betri árangur. Ég trúi því að það sé best að vera hreinn og beinn, heiðarlegur, úrræðagóður og bera virðingu fyrir umhverfinu og meðbræðrum sínum ef maður ætlar að taka þátt í stjórnmálum, og þannig manneskju tel ég mig vera.
Samfylkingin stendur fyrir opnu prófkjöri laugardaginn 27. febrúar í sal Verslunarfélags Suðurnesja að Vatnsnesvegi 14. Þar bíður sig fram fríður hópur fólks sem vill vinna af heilindum fyrir bæinn okkar. Ég hvet alla kosningabæra íbúa Reykjanesbæjar til að taka þátt í prófkjörinu og raða hæfu fólki á listann.
Ég bíð mig fram í 4. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar á laugardaginn.
Ég vil vera þátttakandi í því að gera góðan bæ betri.
Kristlaug María Sigurðardóttir