Pólitíkin | 25. febrúar 2010 | 10:52:32
Traust og heilindi í stjórnmálum

Mikið hefur verið rætt um siðferði og siðrof á síðustu misserum. Traust almennings til stjórnmálamanna, bankastofnana og fjármálafyrirtækja brast. Traust sem hafði byggst upp á mörgum árum í samskiptum manna á milli beið hnekki.  Á næstu misserum þurfa stofnanir  og sveitarfélög að byggja upp traust og hafa það sem grundvallarmarkmið. Það þarf að auka gegnsæi  upplýsinga, vanda til verka og rækta traust.


Allir vita að traust er mikilvægt en hvernig skiljum við traust og hvernig getum við byggt upp traust? Traust er ekki mannlegt eða menningarlegt eðli heldur samviskusamlegt val. Það er í okkar valdi að treysta.  Til að geta lifað í samfélagi verðum við að treysta hvort öðru.

Trausti fylgir persónuleg ábyrgð, skuldbinding og breytingar.  Það byggist á einlægni, áreiðanleika, heiðarleika, dyggð og virðingu. Þeir sem bjóða krafta sína í þágu íbúa sveitarfélaga þurfa líka að treysta sjálfum sér, hegða sér af heilindum og axla ábyrgð.  Sveitarstjórnamenn byggja upp liðsheild, dreifa valdi og ábyrgð og leysa vandamál.
Ég er tilbúin að axla ábyrgð, gefa loforð og efna loforð. 
Þú kæri sjálfstæðismaður tekur ákvörðun laugardaginn 27.febrúar. Treystir þú mér til að axla ábyrgð í þágu íbúa í Reykjanesbæ?


Traust og trygg!
Ingigerði í 3.- 4.sæti.