Pólitíkin | 24. febrúar 2010 | 09:26:07
Ég tala mannamál

Ég er 45 ára Reykjanesbúi og er umsjónakona frístundarskóla. Ég flutti til Reykjanesbæjar 1987. Ég er í sambúð með Jóni Eysteinssyni og eigum við sex börn samalagt og 3 barnabörn. Ég er elst af níu systkinum og snemma fór ég eð vinna og hjálpa systkinum mínum til náms. ?Árið 1980 flutti ég úr sveitinni með foreldrum mínum og systkinum til Grindavíkur og fór að vinna í fiski .Ég man þegar við gellunar vorum að fara með gæjunum á rúntinn til Keflavíkur. Vá, hvað það voru flottir bílar á götum Keflavíkur og vel bónaðir! Svo var höfnin full af skipum og allir áttu peninga því allir höfðu vinnu.?

Í dag eru aðrir og erfiðari tímar. Mér finnst það vera skylda mín að hjálpa til. Það er mjög erfitt að sjá unga fólkið okkar án vinnu og skóla. Allir eiga að hafa vinnu og öll börn eiga að hafa aðgang að íþróttum og frístundaskóla. Það á eitt yfir alla að ganga. Eldra fólkið á að fá alla ummönun og þjónustu í heimabyggð. Og ekki á aðskilja hjón þó annað sé orðið lasið. Sjúkrahúsið og heilsugæslan verða að vera í topp lægi og læknar á staðnum. Við þurfum að hafa öflugt lögreglulið til að ráða við fíkniefnavandann sem hefur verið að herja á okkur hér í bæ.  Við misstum Hitaveituna og þurfum við að hlúa að þeim fyrirtækjum sem eftir eru.  Við þurfum við að hampa okkar listamönnum og leifa þeim að blómstra í heimabæ sínum.

Ég hef haft afskipti af pólitík síðan 1995, alltaf hjálpað öðrum í framboði en nú býð ég fram krafta mína til að hjálpa þér og fjöskyldu þinni að gera Reykjanesbæ að betri bæ. Í mörg ár hef ég starfað í sjálboðavinnu fyrir Rauðakross Íslands og farið í mörg námskeið í sálræni skyndihjálp. Nú þurfum við sálræna skyndihjálp í þessu byggðarlagi. Og þess vegna bíð ég mig framm í 4.- 6. sæti í prókjöri samfylkingunnar og segi: Mat og kærleika á öll heimili.


Kveðja,?
Margrét Óskarssdóttir