Pólitíkin | 23. febrúar 2010 | 20:01:41
Konur og karla til áhrifa
Sveitarstjórnarkosningar verða í vor og þeim fylgir að flokkar þurfa með einhverjum hætti að raða á sína framboðslista. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ hefur ákveðið að viðhaft verði prófkjör að þessu sinni. Prófkjörið fer fram næstkomandi laugardag. Í framboði eru 14 glæsilegir einstaklingar sem erfitt verður að gera upp á milli, allt hið mætasta fólk með víðtæka reynslu og þekkingu á ýmsum sviðum.
Eins og gjarnan vil verða í prófkjörum er hart barist um hvert atkvæði. Þess vegna tel ég ástæðu til að minni á að við val frambjóðanda í prófkjörinu er nauðsynlegt að hafa hugfast að velja konur jafnt og karla á listann. Ég tel eftir langa reynsu af sveitarstjórnarmálum, að það sé afar miklvægt að bæði kyn komi að lýðræðislegri ákvarðanatöku í bæjarfélaginu. Best væri að kynjahlutfallið á listanum væri sem jafnast. Eftir síðustu kosningar árið 2006 voru einungis tvær konur af sjö bæjarfulltrúum í bæjarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Í prófkjörinu á laugardaginn geta sjálfstæðismenn leiðrétt þann halla. Fjórar ungar og frambærilegar konur gefa nú kost á sér til setu í bæjarstjórn. Ég skora á kjósendur að kynna sér bakgrunn þeirra, áhugamál og framtíðarsýn og þá mun það verða auðveld ákvörðun að veita þeim brautargengi.
Í Reykjanesbæ hafa verið stigin mörg framfaraskref á síðustu árum undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Jafnfram hafa drög verið lögð að fjölmörgum og fjölbreyttum nýjum atvinnutækifærum, sem eru þess virði að berjast fyrir. Trygg og örugg atvinna er hagsmunamál fjölskyldna í þessu sveitarfélagi. Við þurfum að halda áfram að byggja hér upp sterkt samfélag og til þess þurfum við traustan framboðslista fyrir kosningarnar í vor, skipaðan hæfileikaríkum konum sem og körlum.
Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.