Pólitíkin | 23. febrúar 2010 | 13:18:55
Reynslunni ríkari!

Þann 6. mars nk. verður haldið í Grindavík opið prófkjör hjá okkur framsóknarmönnum í Grindavík. Félagsfundur ákvað í byrjun janúar að réttur tími væri að bjóða íbúum Grindavíkur upp á þann kost að koma og kjósa þá aðila sem þeir treysta til að vera í forsvari listans fyrir bæjarstjórnarkosningar í maí.


Mönnum hefur orðið tíðrætt um að ekki hafi verið mikil lognmolla í kringum bæjarstjórn Grindavíkur á því kjörtímabili sem nú er að ljúka. Það er að sönnu rétt og meirihlutaslit hafa orðið í tvígang. Ég vil hins vegar minna á að þau slit hafa ekki orðið til í kringum okkur framsóknarmenn.


Býð mig fram til að leiða listann!
Ég hef ákveðið að taka þátt í prófkjörinu og býð mig fram til að leiða listann fyrir kosningar. Ég tel að á s.l. árum hafi ég öðlast mjög mikilvæga reynslu til að takast á við það verkefni. Það er mikilvægt að hafa í huga að þó öll endurnýjun sé af hinu góða má ekki kasta allri reynslu út í hafsauga. Stjórnun bæjarfélags krefst þess að einhverjir sem þar koma að hafi öðlast reynslu sem dýrmæt er að hafa með nýju fólki.


Málefni sveitarfélagins!
Ýmis málefni eru brýn fyrir stjórnendur sveitarfélagsins að hafa í huga á næstunni.


Þar eru fjármál sveitarfélagsins og rekstur. Að mínu mati er mikilvægt að stjórnendur bæjarfélagsins séu á tánum varðandi það umhverfi sem við lifum í. Rekstur sveitarfélagsins hefur verið að þyngjast undanfarin ár og þarf því að gæta aðhalds ásamt því að finna nýja tekjustofna fyrir fjárhaginn.


Gæta þarf vel að undirstöðu atvinnulífsins. Mikilvægt er að hafa í huga að sveitarfélag sem stendur með sínum undirstöðuatvinnuvegi og hugar að því að hlúa að atvinnulífinu stendur ávallt vel.


Á undanförnum árum höfum við Grindvíkingar verið að styrkja okkar skóla og félagsþjónustu. Það er að mínu mati einn af grunnþjónustu sveitarfélagsins sem halda verður vel utan um og styrkja.


Auðlindir okkar sem við erum rík af bæði á landi og legi eru það sem við eigum að stand vörð um. Grindvíkingar eiga að hafa sitt hvað um það að segja hvernig því er stjórnað.


Kjarkur
Það þarf kjark til að stjórna oft á tíðum. Sérstaklega þegar umdeildar ákvarðanir eru teknar. Ég tel að ég hafi þann kjark að taka ákvarðanir varðandi einstök mál þar sem hagsmunir heildarinar eru höfð að leiðarljósi en ekki einkahagsmunir. Nú er það spurningin viljum við Grindvíkingar reynslu og styrk. Ég vil hvetja Grindvíkinga til að koma og kjósa og láta sig málefni sveitarfélagsins varða.


Petrína Baldursdóttir