Pólitíkin | 23. febrúar 2010 | 13:17:07
Ragnheiður Ásta sækist eftir 3.-5. sæti
Ég, Ragnheiður Ásta Þorvarðardóttir, gef kost á mér í 3.-.5 sæti á lista Samfylkingarinnar í bæjarstjórnarkosningunum sem fram fara nú í vor.
Ég er starfandi framhaldsskólakennari og með meistaragráðu í hátækniverkfræði. Ég flutti til Reykjanesbæjar þegar ég kom heim úr verkfræðinámi í Danmörku sumarið 2004 og hef síðan þá kennt raungreinar og stærðfræði við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Reykjanesbær hefur algerlega staðið undir væntingum og er engin eftirsjá af þeirri ákvörðun að flytja hingað. Þó búseta mín hér hafi aðeins spannað 6 ár þykir mér mjög vænt um bæinn minn og íbúa hans og gæti ekki hugsað mér að búa annars staðar.
Ég er gift innfædda Keflvíkingnum Brynju Brynleifsdóttur þroskaþjálfanema og eigum við saman tvö börn, Emil Örn sem er átta ára og Dóru Björgu sem er að verða þriggja ára.
Mitt helsta áherslumál er velferð heimilanna, en hún er best tryggð með nægri atvinnu, góðri menntun og félagsþjónustu. Ég vil leggja mitt af mörkum við uppbygginu réttláts samfélags og tel að sterk réttlætiskennd mín ásamt úrræðasemi geti nýst vel í þágu Reykjanesbæjar.