Pólitíkin | 23. febrúar 2010 | 10:55:24
Sameiginlegur framboðsfundur Sjálfstæðismanna í kvöld

Í kvöld geta bæjarbúar fengið að kynnast frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, sem fram fer næstkomandi laugardag.


Sameiginlegur framboðsfundur allra frambjóðenda fer fram í kvöld kl. 20:00 á veitingastaðnum Ránni, Hafnargötu 19 a.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi mun setja fundinn en fundurinn er annars ætlaður sem vettvangur frambjóðenda til að kynna sig fyrir bæjarbúum og um leið kynnast þeirra sjónarmiðum.


Fyrirkomulag fundarins er svokallað „hrað-stefnumót“, þar sem allir fá sinn tíma með frambjóðendum.


Fólk er sérstaklega hvatt til að mæta tímanlega því fundir sem þessi hafa verið gríðarlega vel sóttir.


Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fer fram laugardaginn 27. febrúar og verður kjörstaðurinn að Nesvöllum opinn frá 10:00-18:00


Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ