Pólitíkin | 23. febrúar 2010 | 09:30:23
Kosningaloforðið mitt
Ágæti íbúi Reykjanesbæjar
Næstu helgi fara fram prófkjör flokkanna til næstu bæjarstjórnarkosninga. Þá munum við bæjarbúar velja þá fulltrúa okkar sem við teljum að geti með framlagi sínu haft áhrif á hvernig bænum okkar verður stjórnað næstu fjögur ár. Hvort við teljum að tími sé kominn til breytinga, eða hvort við séum sátt og ánægð með þá stöðu sem nú er.
Bæjarmálin snúast um það sem næst okkur er, það sem við og börnin okkar erum í snertingu við daglega. Hvernig við viljum hafa það umhverfi. Flest erum við sammála um að það skuli vera sem allra best. Öll viljum við að bæjaryfirvöld að vinni af heilum hug að því að efla þessa þætti, í ljósi aðstæðna.
Nú herðir að. Óhjákvæmilegur niðurskurður er fyrirsjáanlegur á flestum sviðum í útgjöldum bæjarins. Og hann verður meiri hér í Reykjanesbæ heldur en í flestum nágrannasveitarfélögum okkar. Ekki vegna þess að þjónustan hefi hér verið meiri eða betri , heldur vegna þess að hér hafa önnur sjónarmið ráðið undanfarin átta ár. Hér hefur verið eytt um efni fram, eins og enginn væri morgundagurinn.
Verkefni næsta kjörtímabils virðast vera klár hver svo sem kemur til með að stjórna bænum. Annarsvegar uppbygging atvinnutækifæra. Hinsvegar að standa vörð um það sem við teljum grunnstoðirnar í okkar samfélagi, fræðslu og íþróttamál ásamt heilbrigðismálum og þjónustu við aldraða og fatlaða. Það skiptir máli hverja við veljum til forystu. Þrátt fyrir samhljóm um hvert verkefnið er, er ágreiningur um leiðir og markmið. Það er ekki árið 2007 lengur, þau vinnubrögð sem kölluðu yfir okkur hrunið eiga ekki lengur við.
Það væri gaman og gott sem þátttakandi í prófkjöri að geta lofað öllu fögru. Hér snúist allt til betri vegar. Ef ekki fyrir kosningar þá strax eftir þær. En er það í takt við raunveruleikann sem við blasir? Það tel ég ekki. Við erum nú í varnarbaráttu. Ekki eingöngu sökum hrunsins, sem dundi á allri þjóðinni. Heldur líka vegna þess að hér hefur verið illa haldið á málum af þeim meirihluta sem stjórnað hefur bænum í átta ár. Bærinn er í verri stöðu en nokkru sinni fyrr. Álftanesdæmið er á næstu grösum verði ekkert að gert.
Fyrsta skrefið í átt að uppbyggingu er að viðurkenna vandann. Það er grunnatriði. Án viðurkenningar á vandamálinu er ekki hægt að búast við viðunandi lausn. Ég býð mig fram í fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar vel vitandi að vandamálin hverfa ekki þó væntingarnar séu nú kjaftaðar upp. Aldrei hefur verið mikilvægara að veljist sem breiðastur hópur manna og kvenna til setu í bæjastjórn, hópur sem tilbúinn er til að taka vandamál bæjarins fram fyrir eigin hag og flokkshagsmuni. Tími er kominn til breytinga.
Ég óska eftir stuðningi þínum í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar þann 27.febrúar. Mitt eina kosningaloforð er að þú sjáir ekki eftir því. Ég ætla að leggja mig allan fram Reykjanesbæ til heilla.
Með bestu kveðju
Hannes Friðriksson.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: