Pólitíkin | 22. febrúar 2010 | 13:35:46
Nýtt afl á nýjum tímum!
Fólki, sem tekur þátt í stjórnmálum, ber siðferðisleg skylda til að vernda og styrkja umhverfi og líðan samborgara sinna og fást ekki við hagsmunagæslu fyrir sérhópa. Annað er spilling.
Við Íslendingar höfum síðustu árin horft upp á skelfilega þróun efnahagsmála og viðskipta sem að mínu mati á sér einhverjar rætur í pólitískri spillingu. Úr eitruðum kokkteil pólitíkur og peninga spratt samansúrraður hópur pólitíkusa, embættismanna og athafnamanna sem gerðu fordæmalausa atlögu að íslenskum fjölskyldum, fyrirtækjum og bæjarfélögum sem þeim bar siðferðisleg skylda til að vernda og styrkja. Nú eru nýir tímar!
Stjórnmálamenn verða að skilja og muna að hlutverk þeirra er m.a. að veita heilbrigðum viðskiptum brautargengi þannig að markaðsöflin skili því til samfélagsins sem það þarfnast til þróunar og vaxtar.
Fyrir mér er hlutverk stjórnmála svona einfalt. Kannski er sýn mín svona einföld vegna þess að mig skortir pólitískt uppeldi í stuttbuxnadeild einhverrar stjórnmálahreyfingar. Kannski er helsta ástæða þessarar einföldu sýnar minnar sú að ég er hamingjusamlega giftur fjögurra barna faðir sem sér ekki tilganginn með stjórnmálakenningum og flokkapólitík nema það styðji mig á uppbyggilegan hátt í því hlutverki sem er mér kærast af öllum. Kannski er það vegna þess að ég er fyrst og fremst eiginmaður og pabbi sem vill búa í umhverfi þar sem ég get ásamt fjölskyldu minni og samferðafólki notið nútíðarinnar og horft með bjartsýni til framtíðar.
Í Reykjanesbæ get ég horft með bjartsýni til framtíðar því að hér hefur pólitíkin unnið með atvinnusköpun og stöðugt batnandi lífskjör bæjarbúa að leiðarljósi. Í Reykjanesbæ hafa ráðamenn ekki misst sjónar á hlutverki sínu.
Hverjar væru framtíðarvæntingar og vonir íbúa Reykjanesbæjar ef þeirra stóru atvinnusköpunarverkefna sem nú eru í vinnslu nyti ekki við? Hvaða ástæðu hefðum við til að horfa með bjartsýni til framtíðar í atvinnumálum ef hér væri ekki háskóli í örum vexti, einkasjúkrahús í byggingu, byggð námsmannaíbúða í þróun, orkurannsóknir, álversframkvæmdir, flugþjónustuverkefni, hafnarframkvæmdir og virkjunarframkvæmdir í undirbúningi?
Hverjar væru framtíðarvæntingar og vonir íbúa Reykjanesbæjar ef stefnu- og þróttleysi núverandi stjórnarflokka ætti sér samhljóm í Reykjanesbæ? Meðlimum þessara flokka hér í bæ ætla ég ekki slíkt, enda væri það ábyrgðarleysi að leggja stein í götu þeirra úrræða sem við höfum til að eyða atvinnuleysi, treysta tekjustofna bæjarsjóðs og auka tekjur bæjarbúa.
Öll vitum við svörin, sama hvar í flokki við stöndum.
Við skoðun umdeildra ákvarðana hef ég sannfærst um að þær hafa verið teknar með hagsmuni Reykjanesbæjar í huga. Hér vil ég nefna sérstaklega sölu HS Orku og hafnargerð í Helguvík. Í Reykjanesbæ var stóriðju ekki hafnað í kosningum eins og dæmi er um annars staðar. Hún var sótt hingað af miklu harðfylgi og með framtíðarhagsmuni Suðurnesja að leiðarljósi. Um Helguvíkurhöfn var samningi um álverið landað.
Fjölskylda mín sækir heilsugæsluþjónustu til einkarekinnar (ekki einkavæddrar) heilsugæslu í Kópavogi. Yfirlæknirinn þar tjáði mér nýlega að reksturinn gengi vel því að þeim hefði tekist að ná hinum „krítíska massa“, sem er 14.000 manns. Þjónustusvæði HSS telur 22.000 manns.
Hugum öll að þessu þegar við leitum leiðarinnar að fyrirmyndarheilsugæslu í Reykjanesbæ!
Eftir hvatningu fjölskyldu og vina hef ég sett markið á sæti á lista Sjálfstæðisflokksins undir kjörorðinu „Nýtt afl á nýjum tímum“. Ég mun ekki missa sjónar á hlutverki mínu, mun hvorki ásaka né afsaka gjörninga fortíðar heldur vinna að hagsmunum Reykjanesbæjar og horfa með bjartsýni til framtíðar!
Til þess þarf ég stuðning þinn í 3.-5. sæti í prófkjörinu laugardaginn 27. febrúar.
Með bestu kveðjum,
Gunnar Ellert.
www.profkjor.is/gunnarellert