Pólitíkin | 22. febrúar 2010 | 10:47:45
Góðærið í Garði

N-listi – listi nýrra tíma fer með meirihluta í bæjarstjórn Garðs á yfirstandandi kjörtímabili. Listinn er þverpólitískur skipaður einstaklingum úr öllum flokkum sem hafa sameiginlega sýn á hvernig sveitarfélagið megi sem best þjóna bæjarbúum. Breytingarnar sem N-listinn hefur komið á eru ótvíræðar og sýnilegar bæði á innra starfi stjórnsýslunnar sem og á umhverfi og starfi stofnana bæjarins. Ég nefni nokkur dæmi þessu til stuðnings þó óþarfi sé að sannfæra Garðbúa um breytingarnar, þeir hafa fundið þær og séð.

N-listinn stendur fyrir íbúafundum og íbúaþingum til að gefa íbúum tækifæri til að koma að mótun stefnu bæjarins.

Á kjörtímabilinu hafa verið haldnir 12 íbúafundir um ýmis málefni og auk þess íbúaþing um gerð skólastefnu og fjölskyldustefnu, um alla helstu málaflokka og íbúaþing ungmenna. Haldið var einnig fjölsótt málþing um fræðslu gegn fordómum.

N-listinn hefur birt verkefnaskrá fyrir kjörtímabilið og séð til þess að heimasíða sé skýr og aðgengileg með nýjustu upplýsingum, fréttum og tilkynningum ásamt fundargerðum starfsnefnda. Upplýsingar hafa einnig verið sendar til íbúa á pappír.

Framtíðarsýn fyrir bæjarfélagið til ársins 2010 var lögð fram í ársbyrjun 2007.

Heimasíðan er með góðum upplýsingum og fundargerðir starfsnefnda eru settar á síðuna um leið og þær liggja fyrir.

Fréttabréf bæjarstjóra hefur borist bæjarbúum reglulega með helstu áætlunum um framkvæmdir og fleira.

N-listinn hefur unnið að bættum aðbúnaði leikskóla, tónlistarskóla, grunnskóla, íþróttamiðstöðvar og félagsmiðstöðvar barna og einnig þeirra sem eldri eru.

Leikskólinn er nú fjögurra deilda, þriðja deildin tók til starfa 2006 og sú fjórða 2008.

Unnið er að því að tónlistarskólinn verði staðsettur í Gerðaskóla árið 2011 og samstarf skólanna aukið.

Námsaðstaða Gerðaskóla hefur verið bætt stórkostlega. Teknar hafa verið í notkun 6 nýjar heimastofur bekkja, ný smíðastofa, ný textílstofa og glæsilegur samkomusalur sem einnig er nýttur sem mötuneyti. Á þessu ári verða tilbúnar til notkunar raungreinastofa með frábærri aðstöðu til greiningar sýna sem nemendur safna úr nærumhverfinu, myndmenntarstofa, tónmenntastofa, tölvustofa og nemendaeldhús. Bókasafn sem hýsir bæði bæjar- og skólabókasafn verður tilbúið í haust sem og betri vinnuaðstaða fyrir kennara.

Við íþróttamiðstöðina er ný sundlaugarrennibraut og nýr gufubaðsklefi staðsettur við sundlaugarbarminn. Unnið er að bættri aðstöðu fyrir starfsfólk.

Félagsmiðstöð fyrir börn og ungmenni fékk góða aðstöðu fyrir sitt starf þegar bærinn festi kaup á safnaðarheimilinu Sæborgu og sú aðstaða batnar umtalsvert einnig þegar tónlistarskólinn flytur. Mikil ánægja er með aðstöðu eldriborgara í Auðarstofu að Gerðavegi 1 en þangað flutti félagstarf þeirra árið 2008.

N-listinn stundar fagleg og vönduð vinnubrögð.

Skýr sýn um hvert bærinn stefnir í mikilvægum málaflokkum liggur fyrir og er öllum aðgengileg. Í samráði við starfsmenn bæjarins var sett fram starfsmannastefna og í samráði við bæjarbúa, m.a. á íbúaþingum, var sett fram menningarstefna, fjölmenningarstefna, skólastefna, jafnréttisáætlun og þátttaka í staðardagskrá 21. Staðardagskrá 21 snýr að öllum hliðum samfélagsins, efnahag, félagslegum þáttum og umhverfi. Í umhverfismáunum er, m.a. tekið á frárennslismálum og almenningssamgöngum ásamt hreinsunarátaki og uppgræðslu svo eitthvað sé nefnt í þessum stóra málaflokki.

Fjárhagsáætlun og bókhald er nýtt sem stjórntæki við rekstur bæjarins með markvissum hætti. Fjárhagsáætlun er ekki endurskoðuð einu sinni á ári eins og tíðkaðist áður heldur eru teknar ákvarðanir um breytingar á henni jafn óðum og þær koma fram og þannig helst betri yfirsýn yfir rekstur allt árið.

N-listinn hefur lagt áherslu á sköpun atvinnutækifæra og aukið framboð íbúðarlóða.

Unnið hef

ur verið að fleiri atvinnutækifærum, m.a. með samstarfi við nágrannasveitarfélög um álver í Helguvík og uppbyggingu atvinnutækifæra á fyrrum varnarsvæði.

Nýtt hverfi, Teiga- og Klappahverfi er tilbúið til úthlutunar fyrir 195 íbúðir. Allar aðstæður eru því til staðar til að taka við fleiri íbúum um leið og atvinnutækifærum fjölgar.


Fjárhagsstaða bæjarins er góð og þetta yfirlit, sem er aldeilis ekki tæmandi, er sýnishorn af því hvernig N-listinn hefur bætt samfélagið í Garði á stuttum tíma. Í raun má segja að hér sé um algera byltingu að ræða sem hefur komið Sveitarfélaginu Garði á kortið sem framsæknu og öflugu samfélagi.


N-listinn vinnur nú að málefnaskrá fyrir árin 2010-2014 á miðvikudagskvöldum kl. 20 – 22 í Samkomuhúsinu. N-listinn mun áfram stunda vinnubrögð sem einkennast af vandaðri ígrundun, samráði og umræðu. Allir þeir Garðbúar sem vilja hafa áhrif á áherslur næsta kjörtímabils eru hvattir til að mæta. Þess er ekki langt að bíða að einstaklingar verði valdir á listann til að bera uppi stefnuna í bæjarstjórn Garðs á næsta kjörtímabili.


Tryggjum áframhaldandi góðæri í Garði með því að leggja N-listanum lið!


Oddný G. Harðardóttir
bæjarfulltrúi N-listans, fyrrverandi bæjarstjóri og alþingismaður.