Pólitíkin | 19. febrúar 2010 | 15:52:37
Eysteinn sækist eftir 2. sætinu

Ég fæddist á baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí 1966 í Keflavík og er sonur Eyjólfs Eysteinssonar og Þorbjargar Pálsdóttur. Ég er kvæntur Dagnýju Gísladóttur kynningarstjóra og á með henni tvær myndarstúlkur, Sögu 9 ára og Rán Ísold 14 ára.


Ég er stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, lagði stund á stjórnmálafræði og sagnfræði við Háskóla Íslands og hef auk þess lært verkefnastjórnun. Hef unnið margvísleg störf frá unglingsárum, kenndi lengi í Heiðarskóla, hef starfað við verkefnastjórnun síðustu árin en er nú upplýsingafulltrúi Samfylkingarinnar.


Ég hef mikla reynslu af félagsmálum og bæjarmálum sérstaklega. Er varabæjarfulltrúi og þekki flest svið bæjarmála í gegnum störf mín í ferðamálanefnd, markaðs- og atvinnumálanefnd, menningar- íþrótta og tómstundaráði og núna í fræðsluráði.


Á þeim erfiðu tímum sem við lifum ber okkur skylda til að forgangsraða í þágu barna og ungmenna og einnig í þágu viðkvæmra hópa sem þurfa á traustu velferðarkerfi að halda – fyrir því mun ég berjast í anda jöfnuðar og réttlætis.


Undirstaðan að því er að fjölga atvinnutækifærum og vinna að stöðugleika í rekstri bæjarins.


Við þurfum öflugt fólk í bæjarstjórn, fólk sem þekkir bæinn okkar og getur unnið saman að lausn þeirra krefjandi verkefna sem framundan eru á ábyrgan og skynsaman hátt.


Ég sækist eftir 2. sætinu í opna prófkjörinu þann 27. febrúar – taktu þátt og veldu þitt fólk í bæjarstjórn.


Kosið verður í sal VS Vatnsnesvegi 14 kl. 10:00-18:00 laugardaginn 27. febrúar og utankjörfundarkosning er hafin á skrifstofu Samfylkingarinnar að Hafnargötu 35 efri hæð – sjá nánar á xsreykjanesbaer.is.


Eysteinn Eyjólfsson