Pólitíkin | 19. febrúar 2010 | 15:54:32
Ferðaþjónustan skapar ný atvinnutækifæri

FERÐAÞJÓNUSTAN skilar þjóðarbúinu miklum gjaldeyristekjum, á sl. ári námu þessar tekjur 150 milljörðum króna. Einungis hluti þessara tekna rennur til fyrirtækja innan ferðaþjónustunnar og því skapa gjaldeyristekjur ferðaþjónustunnar fyrirtækjum utan greinarinnar, einkum í verslun og þjónustu, mikilvægan rekstrargrundvöll. Tekjur af ferðamönnum hafa því víða áhrif í samfélaginu.


Forskot í samkeppni
Nálægð við alþjóðaflugvöllinn og Bláa Lónið skapa Reykjanesbæ forskot í samkeppninni um athygli ferðamanna. Á sl.ári heimsóttu 420.000 gestir Bláa Lónið, frekari afþreyingarmöguleikar á svæðinu auka líkur á að þessir gestir staldri lengur við og nýti sér aðra þjónustu s.s. Orkuverið Jörð, Víkingaheima og Duushús sem hýsir Listasafn Reykjanesbæjar og Bátasafn Gríms Karlssonar. Allir þessir þættir ásamt Hljómahöllinni, fyrirtaks gistimöguleikum, veitingastöðum verslun og þjónustu styðja við frekari uppbyggingu ferðaþjónustu og skapa sóknartækifæri bæði hvað varðar menningartengda ferðaþjónustu og ráðstefnuferðir sem eru einn verðmætasti þáttur ferðaþjónustunnar.


Ferðaþjónustan – fjölbreytt störf í alþjóðlegu umhverfi
Fjöldi íbúa Reykjansbæjar og nágrannasveitarfélaganna starfa við ferðaþjónustu og má í því samhengi nefna þá sem starfa í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, stærsta vinnustað landsins þegar litið er til starfa í ferðaþjónustunni. Fjölbreytni starfa er mikil t.d. í Fríhöfninni, í sérverslunum og við ýmiskonar þjónustu auk þeirra sem starfa við öryggisgæslu, tollgæslu, lögreglu og þeirra sem starfa fyrir flugfélögin en þar fjölgar störfum með hækkandi sól.


Heilsutengd ferðaþjónusta mun skapa ný störf fyrir íbúa Reykjanesbæjar á næstu mánuðum með tilkomu nýs sjúkrahúss á Ásbrú auk þess sem gera má ráð fyrir afleiddum störfum þar sem sjúklingar munu nýta sér aðra þjónustu á svæðinu. Gert er ráð fyrir allt að 300 störfum þegar sjúkrahúsið hefur hafið fulla starfsemi.


Bláa Lónið hefur um árabil unnið að heilsutengdri ferðaþjónustu og markaðssett Bláa Lóns psoriasismeðferðir á erlendum vettvangi og hafa meðferðargestir frá meira en 20 löndum sótt meðferðina. Langflestir vilja einnig nota tækifærið til að kynnast landi og þjóð og nýta sér þá þjónustu sem býðst ferðamönnum. Þessir gestir líkt og aðrir ferðamenn leigja sér bílaleigubíla, fara í skoðunarferðir versla og njóta veitinga. Einnig er algengt að fjölskyldumeðlimir fylgi þeim sem leitar sér meðferðar. Heilsutengd ferðaþjónusta skapar því eins og önnur tegund ferðþjónustu fjölda afleiddra starfa. Hjá Bláa Lóninu starfa nú tæplega 200 manns og eru 31 prósent starfsmanna búsettir í Reykjanesbæ.


Aukning á fjölda farþega til landsins

Bjartsýni ríkir innan ferðaþjónustunnar og nú þegar hafa flugfélögin boðað öfluga sókn og tilkynnt nýja áfangastaði og reiknar Icelandair með því að farþegum til landsins fjölgi um 10-13 prósent á þessu ári. Þess má þegar sjá merki í atvinnuauglýsingum fyrirtækja í ferðaþjónustu en allar líkur eru á því að ferðasumarið 2010 verði eitt hið stærsta frá upphafi !


Magnea Guðmundsdóttir
Greinarhöfundur er kynningarstjóri Bláa Lónsins hf. og býður sig fram í 3. Sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ þann 27. Febrúar.