Pólitíkin | 19. febrúar 2010 | 10:42:47
Virkjum mannauðinn - Erling í 3.-5.sæti

Bæjarstjórnar Reykjanesbæjar bíða mörg brýn verkefni á næsta kjörtímabili, sem mér væri sannur heiður að taka þátt í. Því bíð ég mig fram í 3 til 5 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Meðal þess sem ég legg mesta áherslu á er að styðja og styrkja þær stoðir sem bæjarfélagið byggir og treystir á.


Styrkjum stoðirnar

Treysta þarf stoðir atvinnulífsins og tryggja stöðugleika. Á þessari stundu er mesta þörfin að styrkja atvinnulíf bæjarins. Hlusta á þarfir þeirra stóru sem smáu fyrirtækja sem eru þegar fyrir hendi í bænum. Huga þarf að þörfum og stöðu hjá fyrirtækjum sem eru helstu burðarásar atvinnulífs í Reykjanesbæ, hver í sinni grein. Styðja þarf við þau fyrirtæki og nýsköpunarfyrirtækjum sem eru að koma sér á legg innan bæjarfélagsins s.s. Álveri Norðuráls í Helguvík, Sólarkísilverksmiðju, Gagnaveri ofl. Huga þarf að því að kynna bæinn sem vænlegan kost fyrir fyrirtæki sem eru að leita að stað til að byggja upp starfsemi sína á.
Mikið hefur verið gert í uppbyggingu möguleika í ferðaþjónustu í bænum og gistirými hefur aukist. Það þarf að styrkja þjónustu við ferðamenn og laða þá að svæðinu. Gaman væri ef hægt væri að koma upp öflugri kynningu á bænum í tengslum við t.d. söfn og ferðaþjónustustaði bæjarins s.s. DUUS eða Víkingaheima. En með því værum við ekki einungis að kynna kosti innan ferðaþjónustu á svæðinu heldur líka kynna kosti og styrkleika svæðisins m.a. til búsetu, lista og atvinnusköpunar, með sem minnstum tilkostnaði. Mikilvægt er að samstaða meðal ferðaþjónustnaaðila skapist, til að geta boðið upp á samræmdar ferðir og þjónustu á svæðinu. En einna helst vantar í bæjarfélaginu möguleika í afþreyingu fyrir ferðamenn, að bjóða upp á fjölbreytni og stöðugleika í þeirri þjónustu sem boðið er uppá.


Heimili og skóli
Mikilvægt er að tryggja framtíð heimilanna og góða menntun fyrir ungviðið, á því byggir framtíð bæjarbúa sem og fyrirtækjanna í bæjarfélaginu. Menntun þarf að vera góð og fjölbreytt, huga að iðnmenntun og sérfræðimenntun sem og grunnmenntuninni. Aukin menntun er líkleg til að skila ekki aðeins aukningu í þjónustu og menningu á svæðinu. Heldur líka auknum aðgangi fyrirtækja að menntuðu starfsfólki sem og mögulegu auknu samstarfi fyrirtækja og menntastofnana á svæðinu. Ég sé fyrir mér að farsælt væri að auka samstarf fyrirtækja og menntastofnana á hinum ýmsu sviðum t.d. til að auka skilvirkni, framþróun og rannsóknir.
Skoða þarf hvað hægt sé að gera til að styrkja innviði skólana til að koma betur til móts við nemendur og fjölskyldur. Ávallt þarf að vera á verði um framþróun í skólamálum í bæjarfélaginu.


Fjölskylda, leikur og starf

Tryggja þarf öryggi fjölskyldna og skapa störf fyrir fyrirvinnur fjölskyldnanna, sem og ungafólkið sem er að koma út á vinnumarkaðinn. Á því byggir hagur fjölskyldna, sem eru hinn trausti grunnur sem bæjarfélagið byggir á.
Með því að foreldrar hafa vinnu felst aukið öryggi hjá börnum og unglingum í bæjarfélaginu. Virk þátttaka í félagslífi og íþróttum skapar aukið sjálfsöryggi þeirra. Í börnunum býr framtíð okkar allra, þau eru auður okkar og umfram allt þarf að hlúa að þeim.


Virðing og þjónusta við þá eldri og þá er þarfnast hjálpar okkar
Mikilvægt er að tryggja mannsæmandi þjónustu til að mæta þörfum hinna eldri íbúa og þeirra sem þarfnast stuðnings okkar. Að virða rétt til viðunandi lífsviðurværis og stuðnings þegar á þarf að halda. Eldri kynslóðin hefur skilað sínu lífstarfi okkur öllum til heilla og hún á skilið að eiga áhyggjulaust ævikvöld að launum.
Fyrir okkur öll skiptir virðing miklu máli, að starf okkar og tilveruréttur sé virtur. Eins og við er að búast í öflugu bæjarfélagi eru margir hagsmunir og hagsmunahópar sem þarfnast styrkrar handar og stuðnings samfélagsins. Reynslan hefur kennt mér að rétta leiðin að farsælli stjórnun er að deila ábyrgð, virðingu og trausti.


Horft til framtíðar

Vegna þess hve öflug uppbygging hefur verið í bæjarfélaginu síðustu árin. Hafa skapast hér ótal tækifæri og nýir sprotar í bæjarfélaginu eins og ekki hefur farið framhjá neinum. Má með sanni segja að hér í Reykjanesbæ, undir styrkri og framsýnni stjórn Sjálfstæðisflokksins hafi skapast land tækifæranna. Enda býður þetta bæjarfélag öðrum fremur upp á ótal styrkleika og tækifæri til að skapa bjarta framtíð bæjarins.


Styrkleikar bæjarfélagsins felast m.a. í:
• Öflugum mannauð og atvinnulífi, sem og ótal tækifærum til atvinnusköpunar


• Lausu íbúðarhúsnæði til að koma til móts við nýja íbúa sem eiga eftir að flykkjast til bæjarins þegar atvinnusköpun svæðisins fer að skila sér í fjölgun starfa.


• Öflugri menntun, sem er grundvöllur framþróunar, rannsókna og styrk stoð við þau heimili og fyrirtæki sem bærinn byggir á.


• Öflugt atvinnusvæði í uppbyggingu m.a. í Helguvík og á Ásbrú. Góð tenging við Reykjanesbraut, Alþjóðaflugvöll og Stórskipahöfn Helguvíkur á eftir að skapa bænum ótal tækifæri í framtíðinni.


• Sterkri stjórn og öflugri framtíðarsýn Sjálfstæðisflokksins sem hefur með dugnaði sínum unnið markvisst að því að móta það fagra, sterka og öfluga bæjarfélag sem við erum stolt af að vera hluti af.


Allir þessir styrkleikar og fleiri munu skila því að Reykjanesbær mun í framtíðinni verða eitt hið öflugasta bæjarfélag á Íslandi. Mikið hefur verið gert síðustu ár og starfið er hafið, nú ríður á að stíga þessi mikilvægu skref áfram og halda áfram uppbyggingu bæjarins. Byrja þarf á að tryggja atvinnuna og byggja upp þau fyrirtæki sem skapa bæjarbúum atvinnu, því að þar er einna brýnasta þörfin í dag. Sé það gert mun allt hitt fylgja í kjölfarið og það mun tryggja framtíð Reykjanesbæjar og blómstrandi bæjarlíf til framtíðar.


Samantekt helstu áhersla:
• Nýta öflugan mannauð og styrkleika svæðisins til atvinnusköpunar.


• Huga að uppbyggingu og styrkingu heimila og menntastofnana.


• Virk þátttaka í félagslífi og íþróttum skapar aukið sjálfsöryggi og er góð forvörn fyrir unga fólkið.


• Styðja ferðaþjónustu á svæðinu og nýta hana til að kynna kosti Reykjanesbæjar.


• Tryggja mannsæmandi þjónustu til að mæta þörfum hinna eldri íbúa og þeirra sem þarfnast stuðnings okkar.

Erlingur Bjarnason
www.profkjor.is/erlingur