Pólitíkin | 19. febrúar 2010 | 08:49:37
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir býður sig fram í 2. - 3. sæti
Ég, Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, þroskaþjálfi býð mig fram í 2. til 3. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í opnu prófkjöri flokksins sem haldið verður þann 27. febrúar næstkomandi í fundarsal Verslunarmannafélags Suðurnesja að Vatnsnesvegi 14 frá kl. 10.00 – kl. 18.00.
Ég er í sambúð með Arnari Svanssyni og eigum við eina dóttur Eyrúnu Unu. Ég er innfæddur Njarðvíkingur og hef nánast búið hér í Reykjanesbæ alla tíð. Ég vann sem leiðbeinandi og síðar deildastjóri á leikskólanum Gimli í 7 ár, í 4 ár vann ég hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi sem stuðningsfulltrúi síðar sem forstöðumaður í frekari liðsveislu, deildastjóri á leiksóla í Noregi í rúmt 1 ár og leysti af hjá Fjölskyldu og félagssviði Reykjanesbæjar í rúmt ár.
Eftir að ég kláraði þroskaþjálfanámið hef ég starfað sem yfirþroskaþjálfi og deildarstjóri í Hinu Húsinu, miðstöð ungs fólks í Reykjavík og verið stundakennari hjá MSS í fullorðinsfræðslu fatlaðra.
Ég er formaður Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ og formaður íþróttafélagsins Nes. Einnig sit ég í stjórn íþróttabandalags Reykjanesbæjar. Í gegnum tíðina hef ég setið í ýmsum nefndum fyrir bæjarfélagið og tekið virkan þátt í pólitísku stafi allt frá unglingsárum fyrst fyrir Alþýðuflokkinn og síðar fyrir Samfylkinguna.
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: