Pólitíkin | 18. febrúar 2010 | 09:22:45
Einar í 3.- 4. sæti – Vinnan er móðir alls
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ fer fram laugardaginn 27. febrúar. Í framboði eru fjórtán öflugir einstaklingar með mismunandi reynslu og bakgrunn. Mörgum á eflaust eftir að þykja erfitt að gera upp á milli þessara góðu frambjóðenda.
Þeim sem veljast til að sitja í bæjarstjórn bíða mörg verkefni. Koma þarf nýjum verkefnum af stað og vinna þeim hugmyndum framgang sem þegar hafa komið fram. Við frambjóðendur keppumst um að telja upp ný og gömul verkefni sem geta alið af sér atvinnutækifæri. Það er þó ekki síður mikilvægt að kjósendur viti hvaða mann við höfum að geyma, því þegar öllu er á botninn hvolft eru það þau gildi sem við stöndum fyrir sem skipta mestu máli. Mig langar því að segja aðeins frá því hvaða gildi skipta mig mestu máli.
Mín gildi eru umfram allt vinna, traust og heiðarleiki og það sem er mér dýrmætast í lífinu eru fjölskyldan og tækifærið til að vinna og hafa áhrif á umhverfi mitt.
Faðir minn sagði alltaf að vinnan væri móðir alls, það var raunar hans lífsmottó. Með þessum orðum er ekki bara átt við að allir þurfi atvinnu til að fæða og klæða fjölskylduna og halda félagslegum tengslum við samborgarana. Þetta þýðir líka það að allt krefst vinnu. Ekkert gerist af sjálfu sér. Það á jafnt við um barnauppeldi og að viðhalda góðu sambandi við maka sinn. Hvort tveggja krefst mikillar vinnu og alúðar. Það er sama hvort bóna þarf bílinn eða byggja álver, ef menn leggja sig ekki alla í verkefnið verður árangurinn eftir því.
Sjálfur hef ég reynt að lifa eftir þessari lífsspeki föður míns, enda var ekki nóg með að ég fengi þessa innrætingu í uppeldinu heldur var ég líka með honum til sjós og þar komst enginn upp með vettlingatök. Ég hef lagt mig fram af öllum krafti í þeim verkefnum sem ég hef tekið mér fyrir hendur og vonast til að fá ykkar stuðning til að vinna að málefnum bæjarins.
Einar Þ. Magnússon
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: