Pólitíkin | 16. febrúar 2010 | 11:45:01
Margrét Óskarsdóttir býður sig fram í 4. - 6. sæti

Margrét Óskarsdóttir gefur kost á sér í 4. - 6. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í prófkjöri flokksins þann 27. febrúar næstkomandi. Margrét hefur starfað í stjórnmálum síðan 1995 en hennar helstu áherslur snúa að fjölskyldu- og velferðarmálunum í Reykjanesbæ.

Margrét hefur starfað til fjölda ára í sjálfboðavinnu hjá Rauða Kross Íslands og sótt mörg námskeið í sálrænni skyndihjálp. Hún telur þá reynslu nýtast sér vel í því verkefni sem framundan er þjóðfélaginu.

„Við þurfum alþýðufólk í bæjarstjórn,  fólk sem veit hvað hinn almenni borgari er að kljást við í þeim veruleika sem við búum við. Við þurfum að hlúa að grunnþjónustunni og standa vörð um heilsugæsluna og sjúkrahúsið. Og ekki síst að skapa tækifæri fyrir alla til atvinnu og menntunar. Þetta eru þau gildi sem ég vil vinna að.
Ég vil efla frístundaskólann og íþróttastarfið. Það var mikil afturför þegar gjöld vegna frístundaskólans voru hækkuð svona mikið ásamt því að íþróttirnar í honum voru aflagðar. Sömuleiðis aksturinn. Það er orðið ógjörningur fyrir þá foreldra sem hafa vinnu að stunda hana vegna kostnaðar við leikskóla og frístundaskóla. Stytting skólatímans til kl. 16 var ekki gott skref. Þessu vil ég breyta. Þá vil ég beita mér fyrir því að bæjarfélagið bjóði upp á ókeypis skólamáltíðir,” segir Margrét Óskarsdóttir.