Pólitíkin | 16. febrúar 2010 | 11:37:12
Nýtum reynsluna til að klára verkin
Á síðustu árum hefur bæjarstjórn Reykjanesbæjar sáð fjölmörgum fræjum í þeim tilgangi að efla atvinnulíf og fjölga atvinnutækifærum. Mörg þessara verkefna eru nú við það að skjóta rótum og framundan er tími uppskeru. Mikilvægt er að þeim verkefnum sé fylgt eftir og tryggt sé að þau skili þeim árangri sem til er ætlast.
Keilir
Við brotthvarf Varnarliðsins 2006 lagði bæjarstjórn Reykjanesbæjar undir forystu sjálfstæðismanna fram ítarlegar tillögur um nýtingu á fyrrum varnarsvæði. Ein af þeim áherslum snéri að því að byggja upp mennta- og háskólasvæði. Í dag eru um 400 nemendur hjá Keili á ýmsum námsbrautum. Orkurannsóknarsetur tók til starfa fyrr á þessu ári í tengslum við Keili og í samstarfi við HS Orku, HS veitur, Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð. Flugakademía Keilis er í burðarliðnum og er áætlað að þar verði um 500 nemendur að fjórum árum liðnum. Mikið líf er í kringum skólastarf á Ásbrú sem bæði skapar fjölda starfa en um leið ótal tækifæri fyrir íbúa sem hér búa og þá sem hingað flytjast á meðan á námi stendur.
ECA program ltd.
ECA er einkafyrirtæki sem vinnur fyrir aðildarþjóðir Nató og hyggst setja á stofn fyrirtæki á Ásbrú í samstarfi við Keili. Þrátt fyrir að starfsemi fyrirtækisins fari að stórum hluta fram erlendis verður heimastöð þess hér á landi sem kallar á tækifæri við flugþjálfun, eftirlit, viðhald, skrifstofustörf, umsjón og margt fleira. Eldsneyti verður keypt hér á landi og lendingargjöld greidd. Verkefnið getur skapað um 150-300 störf þegar fram líða stundir.
Verne Holdings
Framkvæmdir við gagnaver Verne Holdings eru þegar farnar af stað og þrátt fyrir tímabundinn hægagang standa vonir til þess að fyrirtækið setji fullan kraft í þær að nýju á næstu dögum eða vikum. Talið er að fyrirtækið kalli á 20 störf fyrst um sinn en þeim fjölgi í 100 á næstu fjórum árum.
Iceland Health
Í samstarfi við bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur fyrirtækið Salt Investment unnið að stofnun og rekstri sjúkrahúss á Ásbrú þar sem verða um 25-30 legurými ásamt meðferðarstöð. Sjúklingar verða fluttir inn frá Norðurlöndum og Bretlandi. Gert er ráð fyrir að fyrstu sjúklingarnir komi hingað til lands í ágúst á þessu ári. Fyrst um sinn getur verkefnið skapað um 120 störf við framkvæmdir og rekstur en til lengri tíma er ekki ólíklegt að um 300 einstaklingar geti haft vinnu við verkefnið bæði beint og óbeint.
Norðurál í Helguvík
Framkvæmdir í Helguvík hófust á árinu 2008 en hægt var á ferlinu vegna bankakreppu og seinagangs við ákvarðanatöku af hálfu núverandi ríkisstjórnar. Flestum ljónum hefur verið rutt úr vegi en mikilvægt er að fylgja þessu verkefni eftir af fullum krafti og hörku enda talsverð barátta við vinstri-umhverfis sinna sem stöðugt reyna að leggja stein í götu verkefnisins. Þrátt fyrir hægagang eru um 100 einstaklingar í vinnu við verkefnið nú þegar en talið er að þeir verði rúmlega 500 í árslok. Álverið ásamt tengdum verkefnum við línulagnir o.fl. getur skapað um 2000 vel launuð störf. Það er því mikilvægt að ekkert stöðvi þessa mikilvægu framkvæmd.
Þau verkefni sem hér hafa verið talin upp eru alls ekki tæmandi þegar tækifærin í Reykjanesbæ eru saman tekin. Þau sem hér eru nefnd eru líklegust til að skila árangri á allra næstu vikum og mánuðum. Grunnur hefur verið lagður að fjölmörgum öðrum verkefnum sem ekki eru síður spennandi og geta orðið að öflugum atvinnutækifærum á komandi árum. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar undir stjórn Sjálfstæðisflokksins hefur víða lagt net og framundan er að kanna aflabrögð. Mikilvægt er að nýta alla þá reynslu og tengsl sem orðið hafa til við undirbúning þeirra svo fullur árangur náist.
Að því vil ég vinna áfram á næsta kjörtímabili.
Böðvar Jónsson
Höfundur er formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar og býður sig fram í 2.sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ í prófkjöri 27.febrúar n.k.