Pólitíkin | 15. febrúar 2010 | 12:21:34
Eflum atvinnu - auðgum mannlíf
Eftir hrun fjármálakerfisins og þá miklu gengisfellingu íslensku krónunnar sem varð á árinu 2008 standa uppi þrjár meginstoðir íslensks atvinnulífs, sjávarútvegur, ferðaiðnaður og áliðnaður. Þetta eru þær atvinnugreinar sem skapa íslensku þjóðarbúi mestar gjaldeyristekjur. Án þeirra væri staða atvinnulífsins ekki björguleg.
Í Reykjanesbæ hefur verið unnið ötullega að framgangi álvers í Helguvík. Álverið er langstærsta tækifærið til nýsköpunar í atvinnulífi og aukinna útflutningstekna í náinni framtíð. Áætlað er að ársverk við byggingu álversins verði allt að 4.000 en til frambúðar mun álver í Helguvík skapa 1.800 til 2.100 störf þegar saman eru talin störf við álverið og afleidd störf. Um er að ræða vel launuð störf fyrir jafnt konur sem karla. Verkefnið mun rjúfa þann vítahring atvinnuleysis sem er hér á starfssvæði áversins og hafa margskonar jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Enn eru blikur á lofti varðandi framgang verkefnisins. Áframhaldandi orkuöflun til álversins virðist vera í pattstöðu vegna þess að stjórnvöld virðast ekki tilbúin að greiða götu þess að ráðist sé í nauðsynlegar virkjanaframkvæmdir. Annarleg og andfélagsleg sjónarmið fá allt of miklu ráðið um þessar mundir.
Við hér í Reykjanesbæ þurfum að leggjast á eitt eins og reyndar allir landsmenn að ryðja þeim hindrunum úr vegi sem koma í veg fyrir áframhaldandi orkuöflun til álversins í Helguvík. Við líðum ekki frekari tafir.
Í ferðaiðnaði eru gífurlegir mögleikar. Þar þarf aukna kynningu, efla hugmyndaríka þróun þjónustu og tryggja framboð á nægu gistirými. Við þurfum að ná til allra þeirra ferðamanna sem bruna framhjá án þess að eygja þá kosti sem hér bjóðast.
Sjávarútvegur var í eina tíð mjög öflugur hér í bæjarfélaginu. Nú standa mörg þeirra fiskvinnsluhúsa sem áður voru full af lífi, auð og yfirgefin. Við þurfum að kynna þá kosti sem er í útflutningi á ferskum fiski héðan í gegnum Keflavíkurflugvöll. Hvaða möguleikar felast í þessum tómu húsum, sem gætu lifnað við á ný með því að sjávarútvegsfyrirtæki annars staðar af að landinu settu hér af stað vinnslu á ferskum fiski til útflutnings í flugi?
Við íbúar Reykjanesbæjar þurfum að glæða með okkur bjartsýni og baráttuanda. Til að efla atvinnulífið hér í bæ þurfum við að standa saman svo að allar vinnufúsar hendur fái vel launuð störf við sitt hæfi.
Með baráttukveðju
Gunnar Þórarinsson
viðskiptafræðingur
Höfundur býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ 27. febrúar.