Pólitíkin | 14. febrúar 2010 | 13:53:12
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla Sjálfstæðisflokksins
- í Reykjanesbæ hefst á mánudag
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor hefst í Reykjanesbæ á mánudaginn. Hægt verður að greiða atkvæði í félagsheimili sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, Hólagötu 15 í Njarðvík, alla virka daga fram að prófkjöri frá kl. 17.00 til 19.00 og laugardaginn 20. febrúar frá kl. 13.00 til 15.00.
Nú þegar hafa nokkrir aðilar kosið utan kjörfundar í Valhöll, samkvæmt upplýsingum frá kjörnefnd, en þar verður einnig hægt að greiða atkvæði fram að prófkjörinu 27. febrúar.
Alls hafa fjórtán manns gefið kost á sér í prófkjörinu og má sjá sýnishorn af kjörseðlinum á mynd með fréttinni.

Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: