Pólitíkin | 14. febrúar 2010 | 13:49:25
Atvinna innan seilingar

Á Suðurnesjum er eitt mesta atvinnuleysi á landinu. Í janúar voru að meðaltali 1595 atvinnulausir eða 14,5%. Margar fyrirvinnur í Reykjanesbæ, aðallega fjölskyldufeður, eru nú staddir fjarri fjölskyldu og vinum að störfum í fjarlægu landi. Þeir sem starfa erlendis eru „atvinnulausir á Íslandi“ og bætast við prósentutölur vinnumálastofnunar. Það þarf að taka á atvinnumálum af miklum þunga og koma í veg fyrir frekari fólksflótta í kjölfar atvinnuleysis.


Það er vonarglæta í Reykjanesbæ því ef áætlanir ganga eftir þá lagast ástandið hér á svæðinu fyrr en seinna. Fyrirvinnur snúa aftur til síns heima og atvinnulausum fækkar. Innan seilingar eru mörg atvinnuskapandi verkefni sem liggja í:


• Kísilverksmiðju, íslenska Kísilfélagið ehf. fékk starfsleyfi frá Umhverfisstofnun 2.september 2009.
• Álveri í Helguvík – í startholunum.
• Viðhaldsstöð ECA fyrir vopnlausar orrustuflugvélar og jafnvel fleiri verkefni.
• Bygging og rekstur gagnavers Verne Holding á Ásbrú.
• Heilsusjúkrahús Iceland Health á Ásbrú.


Þar sem við búum við mesta atvinnuleysi á landinu verða atvinnurekendur og sveitarfélögin að leggjast á eitt og fanga verkefni á svæðið. Þrátt fyrir metnaðarfull verkefni sem eru rétt innan seilingar þá þarf meira til. Ein leið er að bjóða í verkefni á evrópska efnahagssvæðinu sem hægt er að vinna hér heima eða vera í samstarfi við erlenda aðila.

Ingigerður Sæmundsdóttir, gefur kost á sér í 3.-4.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 27.febrúar.