Pólitíkin | 14. febrúar 2010 | 13:47:12
Verk að vinna – Rúnar V. Arnarson í 4. sætið
Rúnar V. Arnarson sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksinns í Reykjanesbæ sem fram fer 27. febrúar.
Rúnar er fæddur í Reykjavík árið 1956. Hann ólst upp í Reykjavík og á Stöðvarfirði. Hann útskrifaðist sem Fiskiðnaðarmaður frá Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði árið 1977 eftir 3. ára nám. Eftir að námi lauk starfaði Rúnar sem verkstjóri eða framleiðslustjóri hjá ýmsum fiskvinnslufyrirtækjum. Má þar nefna Hraðfrystihús Keflavíkur (Stóra milljón), Búlandstind h/f á Djúpavogi og Sjávarafurðardeild SÍS. Síðastliðin 10 ár hefur Rúnar starfað hjá Sparisjóðnum í Keflavík.
Áherslumál
- Atvinnumál. Mikilvægt er að að hér á svæðinu sé öflugt atvinnulíf enda er það forsenda þess að í bæjarfélaginu skapist gott mannlíf.
- Íþrótta- og tómstundamál verða mjög ofarlega á forgangslista.
- Hlúa vel að aðstöðu og uppbyggingu fjölbreyttrar íþróttaflóru bæjarins.
- Forvarnir. Öflugt íþróttastarf er besta forvörnin.
- Umhverfismál. Fögur ásýnd bæjarins er nauðsynleg umgjörð fjölskylduvæns samfélags.
Reynsla
Það er trú mín að reynslan úr atvinnulífinu muni reynast vel til að takast á við það verkefni að sitja í bæjarstjórn. Síðast en ekki síst mun áralöng reynsla úr íþróttahreyfingunni reynast ómetanleg til að byggja upp og hlúa að þeim öflugu íþróttafélögum og íþróttastarfsemi hér í bæ.
Félagsmál
Rúnar hefur starfað áratugum saman að félagsmálum og þá aðallega innan knattspyrnuhreyfingarinnar, m.a. sem formaður UMF Súlunnar á Stöðvarfirði um tíma. Hann sat í stjórnum og ráðum hjá Keflavík og ÍBK frá 1989. Formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur frá 1997 til 2007. Rúnar situr nú í stjórn Knattspyrnusambands Íslands, er þar í landsliðsnefnd karla og í mannvirkjanefnd KSÍ. Átti sæti í stjórn Sjálfstæðisfélags Keflavíkur og er í fulltrúarráði Sjálfstæðisfélagsins í Reykjanesbæ.
Rúnar er kvæntur Eygló Sigurjónsdóttir og eiga þau tvö börn, Ester Rúnarsdóttir fædd 1980 og Hólmar Örn Rúnarsson fæddur 1981. Barnabarnið er Rúnar Leó Hólmarsson.