Pólitíkin | 12. febrúar 2010 | 11:16:23
Reykjanesbær – íþróttabær
Eitt af flaggskipum Reykjanesbæjar mörg undanfarin ár hefur verið íþróttafólkið okkar. Frábær árangur, bæði í einstaklings- og hópíþróttum, hefur borið hróður Reykjanesbæjar víða, bæði innanlands sem utan.
Við sem höfum verið í forsvari sveitarfélagsins á undanförnum árum höfum lagt mikla áherslu á að skapa íþróttafólki góða aðstöðu og búa að því eins vel og mögulegt er. Umtalsverðir fjármunir eru lagðir til að fjármagna íþróttahreyfinguna á hverju ári en öruggt er að þeir fjármunir skila sér margfalt til baka í formi heilbrigðari og sterkari barna og unglinga um leið og við eignumst íþróttamenn í fremstu röð.
Forsenda fyrir góðum árangri á íþróttasviðinu er að skapa iðkendum góða aðstöðu. Í marga áratugi hefur Reykjanesbær verið í fremstu röð sveitarfélaga þegar borinn er saman aðstaða til íþróttaiðkunar. Þrátt fyrir að dregið hafi úr fjármunum sem sveitarfélagið hefur til ráðstöfunar hefur meðal annars á þessu kjörtímabili tekist að :

• skapa fimleikafólki glæsilega aðstöðu í íþróttaakademíunni.
• gera stórkostlegar endurbætur á knattspyrnuvellinum við Sunnubraut í Keflavík, þ.m.t. að byggja nýtt vallarhús, stækka stúku, girða af svæði og lagfæra keppnisvöllinn.
• byggja félagsaðstöðu fyrir Íþrótta- og ungmennafélagið Keflavík sem tekin verður í notkun á vormánuðum.
• útbúa glæsilega keppnis- og æfingaaðstöðu fyrir knattspyrnudeild Njarðvíkur á nýju svæði vestan Reykjaneshallar.
• setja nýtt gervigras á Reykjaneshöllina
• skapa Hnefaleikafélaginu góða aðstöðu í gömlu sundhöllinni
• styðja Hestamannafélagið Mána við uppbyggingu reiðhallar á Mánagrund
• taka í notkun nýja íþróttamiðstöð með íþróttahúsi og sundlaug við Akurskóla
• vinna við nýtt æfingasvæði Knattspyrnudeildar Keflavíkur vestan Reykjaneshallar
• útbúa sparkvelli og taka í notkun körfuboltavelli á skólalóðum víða í sveitarfélaginu
Síðasta ákvörðun á þessu sviði var tekin á fundi bæjarráðs í gær þegar samþykkt var bygging nýrrar 350 manna stúku við keppnisvöll Njarðvíkinga í knattspyrnu, völlurinn verður afgirtur, rafræn tíma- og markatafla verður sett upp auk fleiri endurbóta á svæðinu. Með því eru uppfyllt skilyrði sem KSÍ setur fyrir keppnissvæði liðs í 1.deild en UMFN vann sig upp í þá deild síðastliðið vor.
Undirritaður leggur áherslu á að áfram verði haldið á sömu braut við uppbyggingu íþrótta- og æskulýðsmannvirkja á næsta kjörtímabili.
Reykjanesbær 11.febrúar 2010
Böðvar Jónsson
formaður bæjarráðs
Höfundur býður sig fram í 2.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ 27.febrúar n.k.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: