Pólitíkin | 8. febrúar 2010 | 08:31:30
Samfylking í Grindavík með kosningu á morgun

Kynningafundur og kosning vegna forvals Samfylkingarfélags Grindavíkurlistans verður haldið í Verkalýðshúsinu þriðjudaginn 9. febrúar kl: 19:30. Kosningin stendur til kl: 22:00 og verða úrslitin kynnt um kl: 23:00.


Sjö hafa gefið kost á sér og er hægt að nálgast upplýsingar um þá inn á www.samfylkingin.is/forval. Fjögur efstu sætin eru bindandi.


Þátt í forvalinu geta tekið allir félagsmenn í Samfylkingarfélagi Grindavíkurlistans 2. febrúar sl.


Kjörstjórn