Pólitíkin | 8. febrúar 2010 | 08:25:35
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ

Fjórtán frambjóðendur gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, sem fram fer laugardaginn 27. febrúar næstkomandi. Frambjóðendur í prófkjörinu eru eftirfarandi:


Árni Sigfússon, bæjarstjóri


Baldur Guðmundsson, markaðsstjóri


Björk Þorsteinsdóttir, skrifstofumaður


Böðvar Jónsson, framkvæmdarstjóri og bæjarfulltrúi


Einar Þ. Magnússon, skipstjóri og útgerðarmaður


Erlingur Bjarnason, vaktstjóri


Gunnar Ellert Geirsson, verkfræðingur


Gunnar Þórarinsson, viðskiptafræðingur


Ingigerður Sæmundsdóttir, kennari


Jóhann Snorri Sigurbergsson, viðskiptafræðingur


Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri


Oddgeir Fr. Garðarsson, verslunarmaður


Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður


Rúnar V. Arnarson, bankamaður


Í prófkjörinu skal kjósa 7 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ sem þar eru búsettir. Einnig er þátttaka heimil stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningunum í vor og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í Reykjanesbæ fyrir lok prófkjör¬fundar.


Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 9.00 - 17.00 alla virka daga fram að prófkjöri og hefst þriðjudaginn 9. febrúar. Frá og með mánudeginum 15. febrúar er einnig hægt að kjósa í félagsheimili sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ, Hólagötu 15 í Njarðvík, alla virka daga fram að prófkjöri frá kl. 17.00 til 19.00 og laugardaginn 20. febrúar frá kl. 13.00 til 15.00.