Pólitíkin | 7. febrúar 2010 | 13:40:01
Ingigerður í 3. – 4. sæti

Ingigerður Sæmundsdóttir, grunnskólakennari og verkefnastjóri, býður sig fram í 3. – 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.

Ingigerður er 41 árs, fædd og uppalin í Reykjanesbæ. Hún er kennari í Akurskóla og verkefnastjóri FFGÍR. Ingigerður var á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar síðastliðið vor og tók virkan þátt í prófkjörinu. Hún er gift Bjarna Jóhannssyni, knattspyrnuþjálfara og framhaldsskólakennara og eiga þau uppkomnar tvíburadætur, ellefu ára son og eitt barnabarn.


„Mínar áherslur eru að stuðla áfram að því að Reykjanesbær verði fjölskylduvænn bær. Ég flutti eftir nám og störf í Reykjavík í gamla bæinn minn með eiginmann og þrjú börn. Hér er gott að búa í nálægð við stórfjölskylduna, vini og kunningja. Hér eru góðir skólar og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf fyrir börn og unglinga. Umhverfi bæjarins hefur tekið stakkaskiptum á átta árum og er ég stolt af hinni nýju ásýnd.


Suðurnesjamenn er að fara illa út úr bankahruni og atvinnuleysi sem hér ríkir. Við þurfum á öllu okkar fólki að halda og verðum að búa svo um að hér séu næg tækifæri og atvinna. Hér er aðstaða til að byggja upp og búa til trausta atvinnuvegi. Í grennd eða á svæðinu er; alþjóðlegur flugvöllur, Ásbrú háskóla- og athafnasvæði, hafið og miðin, orka í jörðu, fegurð í fjöllum og hrauni, Bláa lónið, stórskipahöfn í Helguvík og tvöföld Reykjanesbraut svo eitthvað sé nefnt. Allir þurfa nú að leggjast á eitt og skapa hér tækifæri. Nýsköpunar hugmyndir þurfa að komast upp úr skúffunum og til réttra aðila sem geta veitt fjármagn í verkefni sem skapa atvinnu á svæðinu.


Í Reykjanesbæ er Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem hefur þjónustað íbúa eftir fremsta megni í rúm 55 ár. Um 7000 börn hafa fæðst hér á tæpum þrjátíu árum og þjónusta fæðingardeildarinnar verið rómuð um land allt. Niðurskurðahnífurinn er á lofti og það verða líklega ekki 7000 börn sem fæðast á HSS næstu áratugina ef fram fer sem horfir. Það þarf stöðugleika í framtíðarstefnu stofnunarinnar sem hefur reynst erfitt með sex heilbrigðisráðherrum síðan 2000. Nú velti ég fyrir mér hvort Heilbrigðisstofnun Suðurnesja væri betur komin undir stjórn sveitarfélaganna á Suðurnesjum.


Ég er stoltur íbúi í Reykjanesbæ og veit að hér er fólk sem ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir mótbyr. Ég vill virkja þann mannauð sem hér býr. Ég vil búa í bæ þar sem lýðræði er virt og íbúar finni það raunverulega á eigin skinni. Bæjarfulltrúar þurfa að taka mikilvægar ákvarðanir fyrir hönd íbúa og bið ég um umboð til að starfa í þágu þeirra sem bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ.“

Kæri sjálfstæðismaður ég bið um stuðning þinn í 3.-.4 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ 27.febrúar.


Ingigerður Sæmundsdóttir