Ljósanótt 2007 | 31. ágúst 2007 | 14:12:00
Ljósop sýnir í Félagsbíói

Ljósop er félag áhugaljósmyndara á Suðurnesjum. Félagið var stofnað af 6 meðlimum árið 2006 og hefur dafnað vel síðan og telur nú 48 félagsmenn.

 

Félagið er í samstarfi við Menningar-, íþrótta og  tómstundasvið  Reykjanesbæjar og þaðan hefur félagið fengið árlegan styrk til starfsemi sinnar. Félagið skuldbindur sig í staðinn að halda 2 veglegar ljósmyndasýningar á ári. Hafa þessar sýningar verið einkar vel sóttar af íbúum Reykjnaessbæjar.  Félagið er til húsa í gamla félagsbíóinu í boði Sparisjóðsins. Félagið sinnir einnig samfélagsþjónustu til bæjarins í formi þjónustu til skóla, til að vekja áhuga barna og unglinga á ljósmyndun ásamt ýmsum öðrum verkefnum. 


Ljósop er opið öllum þeim sem áhuga hafa á ljósmyndun. Meðlimir vinna vel saman og deila upplýsingum og tækni hvað varðar ljósmyndun og hittast annan hvern þriðjudag.


Ljósop mun halda sýningu á ljómyndum allt að 23 meðlima í Félagsbíó. Sýningin mun opna fimmtudaginn 30 ágúst kl 19:00 og mun standa alla helgina. Opnun sýningarinnar er frá 14:00-22:00 föstudag, laugardag og sunnudag.
Ljósop hvetur alla íbúa Reykjanesbæjar að koma og sjá frábæra og fjölbreytta sýningu.


Nánari upplýsingar má finna hér: http://ljosop.blogspot.com/