Landsfréttir | 24. ágúst 2010 | 10:07:56
Atvinnuleysisbætur í fimm ár

Fundur með aðilum vinnumarkaðarins um endurskoðun laga um atvinnuleysistryggingar var haldinn í félags- og tryggingamálaráðuneytinu í gær.

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur lýst yfir vilja til að leggja fram frumvarp um að tíminn sem fólk á rétt til atvinnuleysisbóta verði lengdur tímabundið úr þremur árum í fimm. Hann lagði jafnframt til á fundinum að lögin yrðu endurskoðuð í heild sinni í samráði við aðila vinnumarkaðarins í lok ágúst og sú vinna hófst svo í gær.

Haft var eftir Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, í gær að þúsundir manna gætu þurft að leita til félagsþjónustu sveitarfélaganna ef réttur til atvinnuleysisbóta yrði ekki lengdur í fimm ár.

Morgunblaðið greinir frá.