Landsfréttir | 4. ágúst 2010 | 10:22:55
Banaslysum fækkar

Banaslysum við vinnu á landi hefur fækkað um 38 %, ef borinn er saman fyrsti áratugur þessarar aldar við fyrri áratugi, frá miðri síðustu öld. Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu tók saman tölur. Í tilkynningu segir Kristinn að hvert banaslys sé óþolandi og enn sé langt í land með að ná þeim markmiðum sem séu ásættanleg. Þó megi ekki líta fram hjá því að mikill árangur hafi náðst í vinnuvernd síðustu áratugi.

Fréttastofa RUV greinir frá þessu.