Landsfréttir | 3. ágúst 2010 | 13:25:09
Minni áfengissala í ár

Sala áfengis í vikunni fyrir verslunarmannahelgi var 0,9% minni í lítrum talið en í sömu viku fyrir ári.  Samtals seldust 743 þúsund lítrar af áfengi í ár en í sömu viku í fyrra seldust 750 þúsund lítrar.  0,5% færri viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar þessa viku en sömu viku í fyrra, 124 þúsund á móti 125 þúsund árið 2009. Ef einstakir dagar í vikunni eru bornir saman má sjá að fleiri viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar þriðjudag, miðvikudag og föstudag en í fyrra.  Einnig má sjá að 1,2% fleiri viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar á föstudeginum í ár en í fyrra.
Föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgi er venjulega einn annasamasti dagur ársins í Vínbúðunum og síðastliðinn föstudagur var þar engin undantekning.  43.800 viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar þann dag á meðan 43.300 heimsóttu Vínbúðirnar sama dag fyrir ári.

Þetta kemur fram á vef ÁTVR, sjá hér.