Landsfréttir | 16. júlí 2010 | 10:04:43
Enn sjást alvarleg dæmi um skert öryggi barna

Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg könnuðu í maí sl. öryggi leikskólabarna í bílum. Könnunin var gerð við 75 leikskóla víða um land og var öryggisbúnaður 2660 barna skoðaður. Í ljós kom að tæplega 11% barna voru í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti. Þetta er nokkuð betri útkoma en í fyrra þegar rétt tæp 13% barna voru í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti. Til samanburðar má geta þess að fyrir 10 árum síðan voru u.þ.b. 25% barna í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti. Þetta má sjá á myndinni hér að neðan.

Ökumaðurinn ber lögum samkvæmt fulla ábyrgð á að barn noti verndarbúnað. Ökumaður sem sinnir ekki þeirri skyldu má búast við að verða sektaður um 15 þúsund krónur og fá einn refsipunkt í ökuferilsskrá fyrir hvert barn sem er laust eða án viðeigandi öryggisbúnaðar í bílnum.

Eins og sjá má voru vel flestir til fyrirmyndar í þessum efnum en þó komu fram undantekningar sem sýndu skeytingarleysi einstaka foreldra fyrir öryggi barna sinna. Við einn leikskólann voru tvö börn sett saman í eitt öryggisbelti en eins og gefur að skilja getur það haft mikla hættu í för með sér við árekstur. Nokkur tilfelli voru þar sem foreldri sat undir barni en viðkomandi virtist ekki gera sér grein fyrir því að miklar líkur eru á að barnið verði fyrir alvarlegum áverkum þegar þungi foreldrisins leggst á það við árekstur. Í mörgum tilfellum báru foreldrar því við að þeir væru fara svo stuttar vegalengdir. Þeir sem starfa á vettvangi umferðaröryggis vita að slys einskorðast ekki við vegalengdir. Ef viðeigandi öryggisbúnaður er ekki notaður þá verða oft alvarleg slys á stuttri vegalengd og jafnvel þótt farið sé hægt.

Könnun sem þessi hefur verið framkvæmd hér á landi frá árinu 1996 og á svo víðtæk könnun sér ekki hliðstæðu í öðrum löndum. Óhætt er að segja að á undaförnum árum hafi mikið áunnist í öryggismálum barna í bíl. Það má glöggt sjá í meðfylgjandi súluriti. Á fyrstu árum könnunarinnar var öryggisbúnaður barna í bíl óásættanlegur en ljóst er að hugarfarsbreyting hefur orðið í þessum efnum þótt enn vanti töluvert á að hægt sé að segja að ástandið sé viðunandi.