Landsfréttir | 5. júlí 2010 | 11:27:02
Önnur milljón til Landsbjargar af öskusölu

Aftur er komið að því að vefverslunin nammi.is gefi eina milljón króna af öskusöluhagnaði til Slysavarnafélagsins Landsbjargar Askan úr Eyjafjallajökli, sem vefverslunin nammi.is hefur haft til sölu síðan gosið í Eyjafjallajökli stóð sem hæst hefur selst geysivel og hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg þegar fengið greidda eina milljón króna af söluandvirðinu í maí síðastliðnum, en eins og þegar hefur komið fram rennur salan óskipt til félagsins. Björgunarsveitir SL hafa unnið mikið starf á svæðinu, allt frá því gosið hófst og hafa m.a. verið í gæslu og hjálpar- og hreinsunarstarfi í nágrenni gosstöðvarinnar undir Eyjafjöllum.

Askan úr Eyjafjallajökli hefur nú verið seld til tæplega 70 landa og ekkert lát er á vinsældunum. Í ljósi þessa hefur nammi.is nú tekið upp þá nýjung að selja öskunna í þremur stærðum 125, 160 og 1700 gr ásamt því að hægt er að fá hana í 10 glösum saman í pakka, og eru þá sýnin tekin á mismunandi stöðum með eins km. millibili undir Eyjafjallajökli. Eru þessi mismunandi sýni ekki síst hugsuð til að þjónusta rannsóknaraðila á borð við flugvélaframleiðendur, háskóla víða um heim. o.s.frv.


Loks má nefna að hægt er að nálgast öskuna til kaups í verslun nammi.is á 2. hæð í Smáralind.