Landsfréttir | 29. júní 2010 | 13:38:30
Drukknum flugdólgum vísað frá borði

Tveir sauðdrukknir ferðalangar urðu þess valdandi að Airbus-farþegavél rússneska flugfélagsins Aeroflot lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli á laugardag. Vélin var á leið frá Moskvu til Havana á Kúbu. Karlarnir létu dólgslega, reyktu og ógnuðu áhöfninni svo ekki þótti óhætt að halda förinni áfram. Því var lent í Keflavík, þar sem dólgarnir voru handteknir.

Sumarfríið á Kúbu endaði því snarlega áður en það hófst, í fangaklefa í Keflavík.

Mönnunum var sleppt á mánudag og þeir sendir beint til útlendingastofnunar, þar sem hvorugur var með vegabréfsáritun inn á Schengen-svæðið. Rússarnir eru enn hér á landi en munu hafa orðið sér úti um farmiða og halda til síns heima á næstu dögum, það er að segja, ef flugmenn þeirrar vélar meina þeim ekki aðgang, vegna dólgslátanna.

Hjá Aeroflot eru þeir í það minnsta ekki velkomnir, heldur verða framvegis á svörtum lista hjá félaginu.

Fréttastofa Ruv greinir frá þessu.