Landsfréttir | 21. júní 2010 | 14:58:20
Mannabein finnast á Kili
Fyrir tveimur vikum fann Guðmundur A Guðmundsson dýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun bein sem hann ályktar að sé úr höfuðkúpu manns. Beinið fann hann við Guðlaugstungu á Kili. Að sögn Guðmundar var beinið greinilega að koma úr jörðu en hann hefur tilkynnt málið til lögreglu.
Það liggur beinast við að leika sér með þá hugmynd að þarna sé um bein Jóns Austmanns að ræða en hann hvarf um leið og Reynisstaðabræður og hefur ekkert fundist af honum að undanskilinni hendi hans sem fannst innan í vettlingi, segir á fréttavef Feykis, sjá hér.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: