Landsfréttir | 7. júní 2010 | 11:08:04
Unnu skemmdir á Síldarmannagötum

Gróður- og landskemmdir af völdu utanvega aksturs eru stöðugt í fréttum og umræðu. Ómögulegt virðist vera að uppræta þennan ófögnuð og tilmæli um betri umgengni virðast algjörlega hundsuð af ákveðnum hópum. Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum í Skorradal var stödd á Síldarmannagötum, vinsælli gönguleið milli Skorradals og Hvalfjarðar, sl. laugardag. Varð hún og fleiri þá vitni að háttarlagi sjö manna hóps á torfæruhjólum, svokölluðum krossurum.  Hulda var þarna á ferð ásamt hópi sjálfboðaliða á vegum SJÁ (Sjálfboðaliðar um náttúruvernd). Hópurinn vann að endurnýjun á stikum og uppsetningu skilta á Síldarmannagötum. „Þá kom þar að hópur torfæruhjóla og virti ekki bendingar um að stöðva heldur gáfu allir í og spændu upp götuna norður af Tvívörðum, því talsverður aur er enn norðan í móti og leiðin í raun ófær öðrum en gangandi fólki.

Ekki fór betur en svo að einn missti stjórn á hjóli sínu þegar það sökk í aurbleytuna og kastaðist við það fram af hjólinu.

Af fréttavef Skessuhorns, sjá nánar hér.