Landsfréttir | 2. júní 2010 | 09:41:54
KK semur Þjóðhátíðarlagið

Kristján Kristjánsson, best þekktur sem KK, semur Þjóðhátíðarlagið í ár en það verður frumflutt á sérstakri for-Þjóðhátíð sem halda á í Reykjavík í sumar, samkvæmt frétt Eyjafrétta. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi háttur verður hafður á, að sögn Tryggva Más Sæmundssonar sem á sæti í Þjóðhátíðarnefndinni. Allar hljómsveitir sem koma fram á Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina troða upp á reykvísku hátíðinni en bæði Dikta og Páll Óskar Hjálmtýsson hafa boðað komu sína. Rúsínan í pylsuendanum verður auðvitað flutningur Þjóðhátíðarlags KK en hann tekur við keflinu af Bubba Morthens sem átti lagið í fyrra ásamt Egó.


Sjá nánar á eyjafrettir.is