Landsfréttir | 25. maí 2010 | 09:09:33
Engin eldsumbrot í Eyjafjallajökli

Allt virðist hafa verið með kyrrum kjörum í Eyjafjallajökli í nótt, og engar fregnir hafa borist af eldsumbrotum þar, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar.

Nokkrir smáskjálftar mældust í Básum í Þórsmörk í gærkvöldi, en síðan hefur allt verið rólegt. Ekki hefur goslokum þó verið lýst opinberlega, og enn er talið eð eðjuflóð geti steypst ofan af jöklinum, en þau geta orðið þegar leysingavatn og regnvatn blandast gosösku á jöklinum, og allt hleypur fram, eins og tvívegis hefur gerst, til suðurs.

Frétt af www.mbl.is

VFmynd/elg – Frá fyrstu dögum eldgossins í Eyjafjallajökli.