Landsfréttir | 21. maí 2010 | 20:41:02
Ein milljón vegna öskusölu til Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Askan úr Eyjafjallajökli, sem vefverslunin nammi.is hefur haft til sölu undanfarnar vikur, er vinsæl sem aldrei fyrr og hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg nú fengið greidda eina milljón króna af söluandvirðinu, en eins og þegar hefur komið fram rennur söluhagnaðurinn óskiptur til félagsins. Björgunarsveitir SL hafa unnið mikið starf á svæðinu, allt frá því gosið hófst og hafa m.a. verið í gæslu og hjálpar- og hreinsunarstarfi í nágrenni gosstöðvarinnar undir Eyjafjöllum.

Nú þegar hafa á fimmta hundrað krukkur verið seldar til alls 65 landa og ekkert lát er á vinsældunum. Í ljósi þessa hefur nammi.is nú tekið upp þá nýjung að selja 10 glös saman í pakka, og eru þá sýnin tekin á mismunandi stöðum með eins km. millibili undir Eyjafjallajökli. Eru þessi mismunandi sýni ekki síst hugsuð til að þjónusta rannsóknaraðila á borð við flugvélaframleiðendur, háskóla víða um heim. o.s.frv. Þá er einnig hægt að fá ösku í stærri umbúðum, eða um 1,7 kg.

Loks má nefna að hægt er að nálgast öskuna til kaups í verslun nammi.is á 2. hæð í Smáralind.