Landsfréttir | 19. maí 2010 | 16:40:52
Hlutfall kvenna aldrei hærra á framboðslistum

Hlutfall kvenna í framboði til sveitarstjórna er hærra en nokkru sinni áður, eða 1.331 kona á móti 1.515 körlum. Konur eru því 46,8% frambjóðenda. Ef eingöngu eru skoðuð hlutföll kvenna og karla í efstu sætum framboðslista breytist myndin þó umtalsvert.

Hlutfall kvenna í fyrsta sæti framboðslista sem nú bjóða fram er 24,9% á móti 75,1% karla. Konur í öðru sæti framboðslista eru hins vegar 62,2%  en karlar 37,8%. Ef skoðað er hlutfall kvenna og karla í fjórum efstu sætum allra framboðslista kemur í ljós að karlar skipa 55% þessara sæta en hlutfall kvenna er 45%.

Sjá nánar frétt á vef Sambands sveitarfélaga