Landsfréttir | 11. maí 2010 | 09:47:22
Mikið hrun úr Bjarnarey

Í annað sinn á stuttum tíma hefur mikið hrunið úr Bjarnarey.  Í nótt virðist sem hrunið hafi úr eynni á sama stað og síðast, við uppgönguna norðvestanmegin í eynni.  „Þetta er rosalega mikið magn sem hefur hrunið þarna og nær yfir einhverja 50 til 100 metra,“ sagði Gunnlaugur Erlendsson, skipstjóri á björgunarbátnum Þór sem sigldi framhjá eynni í morgun.

„Ég gæti trúað því að þarna hafi hrunið fleiri þúsund tonn af grjóti.  Við vorum talsvert frá eynni þegar lögreglan hafði samband við okkur, fimm mínútur yfir fjögur.  Mér skilst að Haraldur Sverrisson, trillusjómaður hafi séð hrunið um fjögur og látið vita.  Við sáum strax að þarna hafði eitthvað mikið gerst, þótt við værum enn talsvert frá eynni,“ sagði Gunnlaugur.
 
Björgunarbáturinn Þór var í sjúkrasiglingu upp í Landeyjahöfn en verið var að flytja ólétta konu á sjúkrahús á fastalandinu.

Frétta af www.eyjafrettir.is