Landsfréttir | 6. maí 2010 | 08:45:10
Gosið virðist aftur orðið öskugos
Gosið í Eyjafjallajökli virðist aftur orðið kröftugt öskugos eins og í upphafi, mikill öskustrókur hefur risið upp frá eldstöðvunum í gær og í nótt. Krafturinn í sprengigosinu hefur verið mikill og stöðugur, sprengivirkni hefur farið vaxandi. Almannavarnanefnd fundar um stöðuna í dag.
Gosmökkurinn var hæstur um klukkan hálf átta í gærkvöld, eða um tíu og hálfur kílómetri, í nótt hefur hann verið 6-7 kílómetra hár. Efnissamsetning öskunnar verður rannsökuð í dag. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskólans, segir að krafturinn í sprengigosinu hafi verið mikill og stöðugur.
Freysteinn segir að þótt gosmökkurinn hafi náð svipaðri hæð og í upphafi gossins virðist hann vera efnisminni. Hann segir að líklega verði virknin eitthvað svipuð áfram og hún hefur verið í gær og í fyrradag.
Öskuskýið berst ýmist í suður eða suðaustur, og því hefur gjóska valdið flugröskun á Írlandi og á vesturhluta Bretlandseyja í nótt. Flugmálayfirvöld á Bretlandi tilkynntu í nótt að engin aska væri yfir þessu svæði og því voru allir flugvellir þar opnaðir nú í morgun.
Frétt af www.ruv.is
---
Ljósmynd/Ellert Grétarsson.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: