Landsfréttir | 28. apríl 2010 | 11:10:31
Skýrslan er metsölubókin
Rannsóknaskýrsla Alþingis er langsöluhæst bóka hér á landi frá áramótum, samkvæmt metsölulista bókaverslana. Samkvæmt sölutölum bóksala má ætla að hún verði áfram söluhæsta bókin fram eftir ári, ef ekki allt árið.
Þetta kemur fram í orðsendingu frá Emil B. Karlssyni, forstöðumanni Rannsóknarseturs verslunarinnar, sem tekur sölutölur bóka saman á tveggja vikna fresti fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda. Félagið birtir metsölulistann á heimasíðu sinni.
Alþingi er því það bókaforlag sem um þessar mundir nýtur mestrar velgengni.
www.mbl.is greinir frá þessu
Mynd – Á vefsíðu Eymundsson eru ýmsir metsölulistar. Skýrslan um bankahrunið er í efsta sæti yfir mest seldu bækurnar.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: