Landsfréttir | 21. apríl 2010 | 09:31:11
Svikahrappurinn var náðaður fyrir áratug

Hálfsextugur karlmaður, sem situr í gæsluvarðhaldi vegna meintra stórfelldra fjársvika, var náðaður af heilsufarsástæðum fyrir um tíu árum og þurfti því ekki að afplána tuttugu mánaða fangelsi, sem Hæstiréttur hafði þá dæmt hann í, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins sem greinir frá þessu í dag.

Maðurinn var dæmdur fyrir misneytingu gagnvart áttræðri, heilabilaðri konu, með því að hafa fengið hana margoft til að taka fjárhæðir út af bankareikningi sínum og afhenda honum, ráðstafa veðskuldabréfi í hans þágu og undirrita erfðaskrá þess efnis að allar skuldir hans við hana skyldu falla niður við andlát hennar.

Þessi sami maður hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. maí, grunaður um að hafa svikið að minnsta kosti 300 milljónir króna út úr nær hundrað manns.

Sjá nánar á www.visir.is hér