Landsfréttir | 15. apríl 2010 | 17:03:20
Eldgosið stærsta mál dagsins á Google
Eins og gefur að skilja hefur Netið bókstaflega logað í allan dag með fréttum af eldgosinu og afleiðingum þess.
Angar þess teygja sig víða og hvert sem farið er er eldgosið helsta umræðuefnið. Ofurtölvur Google eru helsta tækið sem getur haldið utan um upplýsingamagnið og samkvæmt þeim er eldgosið stærsta mál dagsins.
Þetta er hægt að sjá með því að fara inn í Trends-hluta Google-leitarvélarinnar. Þar er liður sem heitir Hot Topics. Hann skannar alla vefmiðla heimsins, blogg, samskiptavefi og fleira. Á toppnum er "volcano in Iceland", segir í frétt á www.visir.is
Myndina tók Ólafur bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum af búi sínu með eldfjallamökkinn í baksýn.
Volcanic eruption under Eyjafjallajökull glacier
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: