Landsfréttir | 14. apríl 2010 | 17:59:23
Ekkert gos á Íslandsmóti barþjóna
Íslandsmeistaramót barþjóna 2010 verður haldið á Broadway sunnudaginn 18. apríl n.k. Húsið opnar kl. 19.00 og keppnin hefst stundvíslega kl. 20.00. Íslandsmeistaramót barþjóna hefur verið haldið nánast á hverju ári frá stofnun Barþjónaklúbbs Íslands 1963. Sigurvegari og Íslandsmeistari í keppninni á sunnudagskvöldið vinnur sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramóti barþjóna sem verður haldið í Singapor næsta haust.
Nú verður keppt í Flair og Klassík auk þess sem hin árlega vinnustaðakeppni fer fram. Íslandsmeistari í fyrra varð Anna María Pétursdóttir barþjónn á Lækjarbrekku og í vinnustaðakeppninni í fyrra sigraði Þorbjörn Svanþórsson á veitingastaðnum Silfur Restaurant.
Áður en keppni hefst munu nokkrir umboðsaðilar kynna vörur sínar og spéfuglarnir Hallgrímur Ólafsson og Guðjón Davíð Karlsson leikarar verða kynnar og munu örugglega sprella í gestum og gangandi.
Nánari upplýsingar um Íslandsmeistaramót barþjóna er hægt að nálgast á bar.is
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: