Landsfréttir | 13. apríl 2010 | 09:32:46
Hönd með gullúri kippti honum út

Ráðherrar og hagfræðingur lýstu því í skýrslum fyrir rannsóknarnefnd Alþingis þegar forsvarsmenn Landsbankans reyndu 5. október 2008 að sannfæra stjórnvöld um að enn væri hægt væri að bjarga íslenska bankakerfinu með því að sameina Landsbanka og Glitni.

Við skýrslutöku lýsti Össur Skarphéðinsson, þáverandi iðnaðarráðherra og núverandi utanríkisráðherra, fundinum með þessum orðum:

„[Landsbankamenn] [k]omu að kynna okkur eitthvað, frábært tilboð. Og hann [Björgólfur Thor Björgólfsson] sat þarna í sínum flottu fötum, ofsalegur „seller“, að selja eitthvað sem gekk út á það að þeir áttu að fá Glitni ókeypis og fá alla skapaða hluti og síðan allan gjaldeyrisforðann og eitthvert „guarantee“ til viðbótar.

Og Halldór Kristjánsson sat þarna svona eins og laminn hundur og tók ekki mikið undir þetta. Svo var þessi fundur búinn, Sigurjón var þarna, það voru snúðar á  borðunum, skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er nú munnstór maður og mikill og þegar þeir voru farnir út og hann var einn eftir þá tók hann svona hálfan snúð, tróð honum upp í andlitið á sér og skaut undan snúðnum þessari setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd  með gullúri og kippti honum út.“

Af www.mbl.is - sjá nánar hér