Landsfréttir | 9. apríl 2010 | 09:15:51
Ókunnugur maður í rúminu

Óvenjulegt atvik átti sér stað á Akureyri í nótt þegar húsráðandi í Glerárhverfi kom að manni í rúminu sínu þegar hann kom heim rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Hann furðaði sig á því að ókunnugir skór og föt lágu í stofunni og þegar hann ætlaði að kanna málið betur kom í ljós að hurðin inn í svefnherbergið var læst.

Húsráðanda grunaði að ekki væri allt með felldu og hafði því samband við lögreglu sem kom á vettvang og tókst henni að vekja manninn sem er um tvítugt. Ókunnugi maðurinn í rúminu var ekki síður undrandi en húsráðandinn þegar lögregla vakti hann og kvaðst hann hafa villst á húsum. Taldi hann sig vera kominn á gistiheimili sem hann dvelur á. Hann var ölvaður.

Lögregla var búin að svipast um eftir manninum frá klukkan tvö í nótt eftir að félagar hans gerðu lögreglu viðvart að hann hefði horfið sporlaust úr gleðskap í nágrenninu og hefði ekki skilað sér á gistiheimilið. Að sögn lögreglu brást maðurinn vel við þegar hann var vakinn og fékk hann að halda svefninum áfram í fangaklefa. Að sögn varðstjóra verða líklega engir eftirmálar af uppákomu næturinnar.

Frétt af www.dv.is
---

Mynd - Það er ekkert gaman að koma að ókunnugum í manns eigin rúmi.