Landsfréttir | 8. apríl 2010 | 10:01:52
Bankinn tæmdur innan frá
Stefna skilanefndar Glitnis á hendur sex eigendum og stjórnendum bankans sýnir að bankinn var tæmdur innan frá, segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor í viðskiptafræði.
Hann segir að hluthafar hljóti að kanna stöðu sína og mögulegar skaðabótakröfur í framhaldinu. Menn hafi búið til lánareglur og sýnt eftirlitsaðilum en ekki farið eftir þeim. Tveir menn, þar á meðal Jón Ásgeir Jóhannesson, hafi komið fram sem æðstu stjórnendur bankans án þess að hafa formlegt vald til þess.
Eins og komið hefur fram hafa slitastjórn og skilanefnd Glitnis stefnt sex manns til greiðslu sex milljarða króna gegn ófullnægjandi veðum. Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Pálma Haraldssyni er stefnt fyrir að beita eigendavaldi gagnvart bankanum. Lárusi Welding, fyrrverandi stjórnanda bankans, og þremur öðrum bankastarfsmönnum er einnig stefnt.
Fréttastofa RUV greinir frá þessu – sjá nánar hér.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: