Landsfréttir | 6. apríl 2010 | 08:53:52
Áttatíu milljónir til veikra barna

Verkefnisstjórn félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur ákveðið að úthluta 80 milljónum króna til verkefna sem ætlað er að efla þjónustu í heimabyggð við langveik börn og börn með athyglisbrest og ofvirkni. Fjárhæðinni var úthlutað til fjölbreyttra verkefna um allt land.

Alls bárust áttatíu umsóknir frá þrjátíu sveitarfélögum, samtökum sveitarfélaga og skólaskrifstofum.

Sjá nánar á www.visir.is