Landsfréttir | 9. mars 2010 | 09:22:46
Þjóðin stefnir hraðbyri að næsta hruni

Þjóðin stefnir hraðbyri að næsta hruni ef engin raunhæf úrræði koma fram á næstu vikum, segir meðal annars í ályktun miðstjórnar Samiðnar, sem samþykkt var á fundi hennar í gær.

Jafnframt er skorað á alþingismenn að láta hagsmuni fólksins í landinu ganga fyrir og lýst vantrausti á þá alþingismenn, sem spila á efnahagserfiðleika þjóðarinnar, sér til framdráttar og kallað er eftir samstöðu á Alþingi. Sundrungin þar staðfesti að stöðugleikasáttmálinn sé ekki tekinn alvarlega, segir í ályktun Samiðnar.

Af www.visir.is