Landsfréttir | 1. mars 2010 | 09:31:37
2.700 manns horfðu á beina útsendingu frá hreindýraútdrætti
Hátt í 5.000 tölvur tengdust beinni útsendingu og upptöku af því þegar hreindýraveiðileyfi voru dregin út hjá Umhverfisstofnun um helgina. Um 2.700 manns horfðu á beina útsendingu frá útdrættinum og um 2.000 horfðu á upptöku af fundinum að því er segir í tilkynningu frá Nýherja.
Um 3.800 umsóknir bárust um hreindýraveiðileyfi að þessu sinni. Hreindýraveiðileyfiskvóti fyrir árið 2010 er 1.272 hreindýr, skv. heimasíðu Umhverfisstofnunar. Fyrirtækið Sense, sem er dótturfélag Nýherja og sérhæfir sig í hljóð- og myndlausnum, annaðist útsendinguna um netið.
Frétt af www.vb.is
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: